Jólareikningurinn er kominn í loftið
Þegar þú verslar með Netgíró í nóvember og desember getur þú sett öll kaupin á Jólareikning í appinu eða á netgiro.is. Jólareikningurinn 2024 er til greiðslu 3. febrúar 2025.
Þægilegt
Með Netgíró þarftu ekki að slá inn viðkvæmar kortaupplýsingar, bara símanúmer.
Verslaðu það sem þig langar í
Notaðu Netgíró til að versla hjá okkar fjölmörgu samstarfsaðilum. Öll kaup safnast saman á reikning sem er svo greiddur um mánaðarmót.
Dreifðu eins og þér hentar
Skiptu upp greiðslum á þægilegan máta. Dreifðu mánuðinum í heild, einni færslu eða fleirum; bara nákvæmlega eins og þér hentar.
Einhverjar spurningar?
Hér finnur þú spurningar um allt og ekkert tengt Netgíró.
Netgíró virkar í rauninni eins og kreditkort. Þú notar appið til að versla og færslurnar safnast saman á einn reikning sem er til greiðslu um mánaðamót.
Þegar komið er að því að greiða opnar þú Netgíró appið og setur strikamerki upp á skjáinn sem starfsmaður verslunarinnar skannar. Einfalt, öruggt og þægilegt.
Þú velur að greiða með Netgíró, slærð svo inn símanúmerið þitt og staðfestir svo kaupin í Netgíró appinu. Einfalt, öruggt og þægilegt.
Þú greiðir 495 króna mánaðargjald fyrir hvern mánuð sem þú notar Netgíró. Kjósir þú að dreifa greiðslum fer kostnaðurinn eftir upphæð og fjölda gjalddaga. Kynntu þér endilega verðskránna okkar hér og prófaðu reiknivélina okkar.
Þúsundir verslana bjóða upp á greiðslulausn Netgíró. Þú getur skoðað hvern og einn einasta þeirra hér.
Öruggt og þægilegt