Meðferð kvartana

    Við höfum það að leiðarljósi að starfsemi Netgíró sé í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti. Hluti af því er að bregðast fljótt og vel við ábendingum og kvörtunum sem okkur berast frá okkar viðskiptavinum.

    Netgíró vinnur eftir reglum móðurfélags síns, Kviku um meðferð kvartana. Tilgangur þeirra er að tryggja að ferli við úrvinnslu kvartana viðskiptavina sé sanngjarnt, gagnsætt og að úrvinnslu- og svartími mála sé eins skammur og kostur er. Þá er tilgangur reglnanna einnig að koma í veg fyrir mistök starfsmanna bankans eða brot á lögum og reglum endurtaki sig.

    Hafi viðskiptavinur einhverjar ábendingar eða kvartanir vegna meintra mistaka Netgíró og/eða starfsmanna Netgíró á framkvæmd laga eða reglna getur hann komið því til skila með því að senda rafræna ábendingu í gegnum „hafa samband" boxið hér fyrir neðan. Netgíró heldur utan um kvartanir og meðhöndlun þeirra. Netgíró fylgir reglum Fjármálaeftirlitsins um meðhöndlun kvartana og samskipti við viðskiptavini sem sjá má hér.

    Réttar­úrræði viðskipta­vina

    Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki

    Ef viðskiptavinur er ósáttur við þau svör sem Netgíró veitir, getur hann beint kvörtun sinni til Úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki, sem fjallar m.a. um ágreining viðskiptavina við fjármálafyrirtæki. Kvörtun til úrskurðarnefndarinnar skal afhent Fjármálaeftirlitinu skriflega á sérstöku eyðublaði sem má nálgast á skrifstofu eftirlitsins og heimasíðu þess. Erindi skulu send til:

    Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki
    Guðrúnartún 1,
    105 Reykjavík
    Tölvupóstur: fjarmal@nefndir.is
    Sími: 578-6500

    Upp­lýsinga- og leið­beininga­þjónusta Fjármála­eftir­litsins

    Fjármálaeftirlitið leiðbeinir viðskiptavinum eftirlitsskyldra aðila. Í því felst að leitast er við að leiðbeina aðilum um þau úrræði sem þeir hafa til að ná fram rétti sínum, m.a. hvaða aðilar fari með úrskurðarvald í þeirra málum og aðrar almennar leiðbeiningar. Sjá nánar á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins.

    Dóm­stólar

    Aðilar geta leitað réttar síns fyrir almennum dómstólum hafi ágreiningsefnið ekki verið undanþegið lögsögu þeirra með lögum eða samningi.

     Neytenda­stofa

    Neytendastofa er ein þeirra eftirlitsstofnana sem hafa eftirlit með viðskiptalífinu og lögum frá Alþingi sem sett eru vegna öryggis og réttinda neytenda. Á heimasíðu Neytendastofu er m.a. unnt að nálgast upplýsingar um það í hvaða tilvikum og með hvaða hætti neytendur geta leitað til stofnunarinnar, telji þeir að réttur sé á þeim brotinn.